Náið parasamband er eitt mikilvægasta lífsmarkmið mannsins.
Rómantísk parsambönd geta stuðlað að heilbrigðri hegðun og spornað gegn þróun geðraskana. Sem dæmi stuðlar stuðningur frá maka að auknu sjálfsöryggi til að standa sig í stykkinu hvað varðar það að bæta svefnvenjur sínar og stunda líkamsrækt, en hvort tveggja eru dæmi um verndandi lífsstílsþætti í samhengi líkamlegrar og andlegrar heilsu. Hins vegar skiptir sköpum að sambandið einkennist af stuðningi og virðingu fyrir þörfum beggja aðila.
Á hinn bóginn geta sambönd sem einkennast af mjög lítilli ánægju reynst yfirþyrmandi. Í slíkum tilfellum er mikilvægt að bera kennsl á meginþemu ágreinings og vandkvæða í sambandinu, svo sem tilfinningalega fjarlægð eða tilhneigingu til átaka og ýgi.
Ýmiskonar parameðferðir hafa verið þróaðar í gegnum árin í því skyni að styðja við farsæl sambönd. Þar hefur fólk eins og Álfheiður Steinþórsdóttir, sérfræðingur í klínískri sálfræði, verið fremst í flokki hvað innleiðingu slíkra meðferða á Íslandi varðar.
Hins vegar er ákveðin vandi í því fólginn að okkur skortir áreiðanleg og réttmæt mælitæki til að meta ánægju í parasamböndum. Vandamálið kristallast í því að hlutlægt mat á meðferðarárangri parameðferða reynist þrautinni þyngri. Til að mæta þessum áskorunum var nýtt mælitæki hannað við Stokkhólmsháskóla: Valentínusarskalinn!
Valentínusarskalanum er ætlað að meta sambandsánægju á stuttan og einfaldan máta. Það er skemmtilegt að segja frá því að Valentínusarskalinn hefur þegar verið þýddur yfir á íslensku og má nota hann að kostnaðarlausu (sjá https://osf.io/fb72s/).
Þýðing Valentínusarskalans var í umsjón eftirfarandi aðila: Jón Ingi Hlynsson, Hinni Hreinsson, Julius Hreinsson, Ísak Örn Ívarsson og Atli Valur Jóhannsson.
Vefútgáfa: Taktu púlsinn á sambandinu þínu!
Við útbjuggum vefútgáfu þar sem þú getur prófað að taka púlsinn á sambandinu þínu með Valentínusarskalanum. Þegar þú hefur svarað spurningum skalans færðu svo hugmyndir um hvernig megi kanna nánar, styrkja og þróa sambandið við maka þinn nánar.
Smelltu á hlekkinn til að skoða vefútgáfu Valentínusarskalans: https://valentinskalan.se/is/
ATH: Vefsíðan safnar ENGUM gögnum! Hún er aðeins sett fram til gamans í aðdraganda Valentínusardagsins.
Réttmætisathugun í sænsku þýði
Í samstarfi við Stokkhólmsháskóla framkvæmdum við réttmætisathugun á Valentínusarskalanum (sjá nánar hér fyrir neðan). Smelltu hér til að skoða rannsóknina sjálfa.
Ábyrgðarmaður rannsóknarinnar, Per Carlbring, fjallaði einnig um rannsóknina hér.
Rannsóknin skoðaði próffræðilega eiginleika Valentínusarskalans í sænsku þýði og voru sterk vísbendi um að mælitækið gefi áreiðanlega og réttmæta hugmynd um sambandsánægju.
Í tveimur óháðum úrtökum var þáttabygging, áreiðanleiki (þ. á m. stöðugleiki mælinga yfir tíma) og réttmæti Valentínusarskalans metið. Niðurstöðurnar í heild sinni styðja við þá hugmynd að Valentínusarskalinn sé áreiðanlegt og réttmætt mælitæki sem rennir stoðum undir notagildi hans í rannsóknum og klínískri vinnu.
Vert er þó að athuga að frekari rannsókna er þörf (svo sem mat á röðun atriða og réttmæti þess að nota summuskor; sbr. atriðagreining) og auk þess eru próffræðilegir eiginleikar enn ókannaðir í íslensku þýði. Er því kjörið tækifæri fyrir þá sem rennur blóðið til skyldunnar að framkvæma réttmætisathugun hérlendis!
Niðurstöður rannsóknarinnar má lesa með því að smella á hlekkinn hér að neðan:
Hlynsson, J. I., Ívarsson, Í. Ö., Andersson, G., & Carlbring, P. (2025). To be or not to be satisfied in your romantic relationship: Evaluating the reliability and validity of the Valentine scale. Cognitive Behaviour Therapy. https://doi.org/10.1080/16506073.2024.2420655